|
|
 |
 |
|
Reglur um notkun forsetakeðju
Reglur um notkun forsetakeðju.
1.grein
Forsetakeðjun skal borin samkvæmt því sem hér segir :
1. Á Jólafundum
2. Á aðalfundum
3. Á stjórnarskiftafundum
4. Á almennum fundum
5. Þegar Katla fær Kiwanis-klúbb í heimsókn
6. Á fundum þar sem erlendir Kiwnais gestir mæta
7. Á fundum þar sem Kiwanis félagi er heiðraður
8. Á fundum þar sem makar eru gestir
2.grein
Þegar ekki á að bera forsetakeðju :
1. Eigi skal bera forsetakeðjuna á almennum skemmtunum
2. Eigi skal bera forsetakeðjuna á útifundi hvort svo sem tilefni hans kann að vera
3.grein
1. Þegar Katla heldur fund að hálfu á móti öðrum Kiwanis klúbb er það á valdi forseta hvort
forsetakeðjan skuli borin og þá í samráði við forseta hins klúbbsins.
2. Mæti forseti Kötlu á Evrópu – eða Umdæmisþingum er honum í sjálvald sett
hvort hann ber forsetakeðjuna.
3. Í tilfellum er vafi leikur á hvort bera skuli forsetakeðjuna sker forseti úr um notkun,
en leitað getur hann álits stjórnar á því.
Samþykkt 31.nóvember 1984
Páll H.Pálsson Sigurður Tómasson Hilmar Svavarsson
|
|