|
|
 |
 |
|
Eldfjallið KATLA

Katla er eldstöð. Hún er um 1450 metra yfir sjávarmáli í suðaustanverðum Mýrdalsjökli og er í röð þekktustu gosstöðva landsins. Hún er venjulega hulin jökli en hefur að jafnaði gosið á 40 til 80 ára fresti. Brýst hún þá í ógurlegum hamförum undan jöklinum, bræðir hann á stóru svæði, og veldur feiknarlegu flóði sem flæðir með jakaburði suður allan Mýrdalssand.
Mun vatnsmagnið vera svipað og í mesta fljóti veraldar "Amazon fljótinu"
þegar það (kötluflóðið) er í mestum vexti eða um 400.000 rúmmetrar á sekúndu.
Heimildir geta um 16 gos í Kötlu en sennilega munu þau hafa verið um 20 talsins. Hlaup kom úr Mýrdalsjökli árið 1922 og einnig 1979 án þess
að um gos væri að ræða. Sum Kötluhlaup hafa verið ógnar mikil og hafa þau eytt byggð þeirri sem fyrrum var á Mýrdalssandi.
Sagt er að í gosi 894 hafi tekið af 6 bæi og eitt öllu grónu landi milli Hólmsár og Skálmar. Í öðrum gosum hafa einstaka bæi tekið af.
Kötluhlaup sem kom árið 1311 hefur verið kallað Sturluhlaup. Þá tók af marga bæi í svonefndu Hjáeyjarhverfi og drukknaði allt fólk þar af því
sem munnmæli herma.
Þó bjargaðist einn maður Sturla að nafni. Hljóp hann með barn í vöggu upp á ísjaka og barst með honum út til hafs.
Jakann rak síðar að landi og björguðust bæði Sturla og barnið.
Síðast gaus Katla árið 1918, flæddi þá yfir Mýrdalssand á stórum svæðum en olli ekki tjóni á fólki, fénaði né húsum. Smalamenn sluppu undan flóðöldunni er hún geistist niður sandinn. Ekki er lang frá Kötlu í Flóann og aðrar gróðursælar sveitir á Suðurlandsundirlendi.
Flestum mun vera ljóst hversu stórum skaða öskufall úr Kötlugosi mundi valda á þessu mesta mjókurbúri landsins. Katla er nú komin nokkur ár
fram yfir tíma sinn þann sem búast mætti við gosi frá henni. Ólíklegt er þó að hún sé dauð úr öllum æðum. Eitt er þó víst. Við Kötlufélagar erum lifandi og okkar markmið er að byggja upp og bæta en ekki brjóta niður og eyða.
Skrifað 1990
|